GIMP býður upp á öflugt myndvinnsluforrit með tólum sem eru sambærileg við Adobe Photoshop að frádregnum dýrum leyfisgjöldum. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist grundvallarþekkingu á myndvinnsluforritinu GIMP.

Námskeiðið er sérstaklega sniðið að þörfum þeirra sem vilja læra grunnatriði myndvinnslu í Gimp ljósmyndaforritinu.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Muninn á myndum til birtingar á prenti og fyrir heimasíðu
  • Farið er yfir notkun Curves, Levels og skerpun
  • Farið yfir notkun á „layers“
  • Vinnsla portrait og landslags ljósmynda
  • Frágangur mynda og vistun
  • Viðbætur og G’IMG.

GIMP forritið er ókeypis
Hægt er að sækja ljósmyndaforritið ókeypis á heimasíðunni www.gimp.org og er það fáanleg fyrir Linux, Windows og Mac. Gimp er öflugt myndvinnsluforrit líkt og Photoshop en er frjálst og ókeypis.  Þátttakendur þurfa að koma með fartölvu með GIMP uppsett.

Lengd: 12 klst.
Verð: 19.900 kr.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda